dcsimg
Creatures » » Plants » » Gymnosperms » » Pines »

Baishan Fir

Abies beshanzuensis M. H. Wu

Abies beshanzuensis ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Abies beshanzuensis (á ensku: Baishanzu fir, Baishan fir) er tegund af þin. Hann er einlendur í Kína, nánar tiltekið Baishanzu Shan í Suður-Zhejiang héraði í Austur-Kína, þar sem hann vex í 1850 metra hæð og stafar ógn af söfnun og loftslagsbreytingum].[2][3][4] Útbreiðslan er innan náttúruverndarsvæðisinsFengyangshan – Baishanzu. Abies beshanzuensis er skráður í útrýmingarhættu á válista IUCN.[1]

Hann var uppgötvaður árið 1963 á tindi fjallsins Baishanzu Shan (1.857 m), þar sem einungis sjö tré fundust. Þrjú þeirra voru grafin upp og flutt til Beijing Botanical Garden, þar sem þau drápust. Um 1987 voru aðeins þrjú tré þekkt í náttúrunni, sem gerir hann þennan þin að sjaldgæfasta barrtré í heimi.[5] Nýjar útplantanir með ágræðslu á Baishanzu Shan og öðrum nálægum stöðum hafa skilað nokkrum árangri, en tegundin er enn í útrýmingarhættu.[3]

Þetta er 15 til 17 metra hátt tré, með breiða keilulaga krónu og bol að 80 cm metra þvermáli. Sprotarnir eru gildir, fölgulbrúnir, hárlausir eða lítið eitt hærðir. Barrið er nálarlaga, 1,5 til 4 cm langt og 2,5 til 3,5 mm breitt, skærgrænt að ofan, og með tveimur hvítum loftaugarásum að neðan. Könglarnir eru mjó-sívalir til keilulaga, skærgrænir meðan þeir eru óþroskaðir, en þroskaðir eru þeir fölgulbrúnir, 6 til 12 cm langir og 3 til 4 cm breiðir, með útstæðar og aftursveigðar hreisturblöðkur.[2][3]

Þessi þinur er náskyldur Abies firma frá Suður-Japan og er stundum skipað með honum einum í undirættkvíslina Abies subsect. Firmae.[2][3] Sumir grasafræðingar telja tegundina Abies ziyuanensis til Abies beshanzuensis sem undirtegund,[6] en aðrir setja setja þá tegund í aðra undirættkvísl, Abies subsect. Holophyllae.[3]

Tilvísanir

  1. 1,0 1,1 Abies beshanzuensis. IUCN Red List of Threatened Species. Version 2013.2. International Union for Conservation of Nature. 2010. Sótt January 4, 2014.
  2. 2,0 2,1 2,2 Rushforth, K. (1987). Conifers. Helm. ISBN 0-7470-2801-X.
  3. 3,0 3,1 3,2 3,3 3,4 Farjon, A. (1990). Pinaceae. Drawings and Descriptions of the Genera. Koeltz Scientific Books. ISBN 3-87429-298-3.
  4. Liguo Fu; Nan Li; Thomas S. Elias & Robert R. Mill. Abies beshanzuensis var. beshanzuensis. Flora of China. Missouri Botanical Garden, St. Louis, MO & Harvard University Herbaria, Cambridge, MA. Sótt September 25, 2012.
  5. Dudley, T. R. (1988). „Chinese firs, particularly Abies beshanzuensis“. 5. American Conifer Society Bulletin: 84–93.
  6. Liguo Fu; Nan Li; Thomas S. Elias & Robert R. Mill. Abies beshanzuensis var. ziyuanensis . Flora of China. Missouri Botanical Garden, St. Louis, MO & Harvard University Herbaria, Cambridge, MA. Sótt September 25, 2012.


Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Abies beshanzuensis: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Abies beshanzuensis (á ensku: Baishanzu fir, Baishan fir) er tegund af þin. Hann er einlendur í Kína, nánar tiltekið Baishanzu Shan í Suður-Zhejiang héraði í Austur-Kína, þar sem hann vex í 1850 metra hæð og stafar ógn af söfnun og loftslagsbreytingum]. Útbreiðslan er innan náttúruverndarsvæðisinsFengyangshan – Baishanzu. Abies beshanzuensis er skráður í útrýmingarhættu á válista IUCN.

Hann var uppgötvaður árið 1963 á tindi fjallsins Baishanzu Shan (1.857 m), þar sem einungis sjö tré fundust. Þrjú þeirra voru grafin upp og flutt til Beijing Botanical Garden, þar sem þau drápust. Um 1987 voru aðeins þrjú tré þekkt í náttúrunni, sem gerir hann þennan þin að sjaldgæfasta barrtré í heimi. Nýjar útplantanir með ágræðslu á Baishanzu Shan og öðrum nálægum stöðum hafa skilað nokkrum árangri, en tegundin er enn í útrýmingarhættu.

Þetta er 15 til 17 metra hátt tré, með breiða keilulaga krónu og bol að 80 cm metra þvermáli. Sprotarnir eru gildir, fölgulbrúnir, hárlausir eða lítið eitt hærðir. Barrið er nálarlaga, 1,5 til 4 cm langt og 2,5 til 3,5 mm breitt, skærgrænt að ofan, og með tveimur hvítum loftaugarásum að neðan. Könglarnir eru mjó-sívalir til keilulaga, skærgrænir meðan þeir eru óþroskaðir, en þroskaðir eru þeir fölgulbrúnir, 6 til 12 cm langir og 3 til 4 cm breiðir, með útstæðar og aftursveigðar hreisturblöðkur.

Þessi þinur er náskyldur Abies firma frá Suður-Japan og er stundum skipað með honum einum í undirættkvíslina Abies subsect. Firmae. Sumir grasafræðingar telja tegundina Abies ziyuanensis til Abies beshanzuensis sem undirtegund, en aðrir setja setja þá tegund í aðra undirættkvísl, Abies subsect. Holophyllae.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS