dcsimg
Image of Abies guatemalensis var. jaliscana Martínez
Creatures » » Plants » » Gymnosperms » » Pines »

Abies guatemalensis var. jaliscana Martínez

Abies flinckii ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Abies flinckii, einnig þekktur sem Jalisco þinur, er sígrænt barrtré ættað frá Suður Mexíkó og Guatemala.

Lýsing

Abies flinckii er sígrænt tré, að 20 til 35 metra hátt, með að mestu keilulaga krónu. Ársvöxtur er yfirleitt 30 sm. Börkur er fyrst grár og sléttur, síðar hreistraður. Sprotar eru mjóir, upphaflega grænn, síðar ólífubrúnir. Nálar eru 3.5 til 7 sm langar og 2 mm á breidd, að ofan grænar, neðan með tvær hvítar loftaugnarendur. Könglar eru ílangt-keilulaga, 12 til 16 sm langir, 4 til 4,5 sm á breidd, á 1 sm löngum stilk. Fræ eru ljós brún, 9 mm löng og 4 mm á breidd, með 25 mm löngum og 15 mm breiðum væng. Fræin þroskast í nóvember.[1]

Útbreiðsla

Þessi tegund af þini er vex í Mexíkó (Jalisco og nærliggjandi Michoacán[2], einnig Sinaloa[1] og Nayarit). [3] Það þekktist aðeins á 11 eða 12 stöðum með samtals svæði á 48 km2.[2] Á hluta svæðisins skarast útbreiðslan við hina náskyldu Abies guatemalensis. [3][3]

Búsvæði

Tréð vex í rökum jarðvegi í svölu og röku úthafsloftslagi í 1900-4100 metra hæð yfir sjávarmáli. Það þolir niður að að -6°C. Oftast er það í blönduðum skógum ásamt nokkrum öðrum barrtrjám fjalla, sérstaklega með Abies religiosa, Cupressus lusitanica, Pinus ayacahuite, P. montezumae, P. pseudostrobus og fleiri furutegundum ( Pinus hartwegii, P. devonian). Neðar í hlíðum, samanstendur skógurinn (ásamt Abies flinckii) aðallega af ýmsum tegundum af eik (Quercus), Arbutus og Eini (Juniperus).[2]

Flokkun

Þessari tegund var fyrst lýst af Martinez árið 1948 sem undirtegund af Abies guatemalensis; Abies guatemalensis Rehder var. jaliscana Martínez. Upprunalega lýsing var byggð á lélegum eintökum úr plöntusöfnunum sem voru geymd í safni trjágarðsins í Kew, Surrey, Bretlandi. Með síðari rannsóknum á lifandi eintökum var staða hans endurskoðuð og árið 1989 var viðurkenndur sem sérstök tegund sem heitir Abies flinckii Rushforth.[1][4]

Nytjar

Viðurinn er tiltölulega mjúkur og almennt beinn og er ákjósanlegur sérstaklega í byggingu, hann er einnig notaður til framleiðslu á þakskífum, verkfæri, hefðbundið handverk og kol. Á síðari tímum er hann einnig að verða vinnsæll sem jólatré og í jólagreinar.[2]

Ógnir

Tréð er oft ólöglega fellt fyrir timbur, auk þess að það er að komast í tísku sem jólatré. Tréð er af þessum ástæðum talið í hættu.[2]

Tilvísanir

Ytri tenglar

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Abies flinckii: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Abies flinckii, einnig þekktur sem Jalisco þinur, er sígrænt barrtré ættað frá Suður Mexíkó og Guatemala.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS