Möðruætt[1] (latína: Rubiaceae) er ein stærsta ætt blómplantna. Hún inniheldur 611 ættkvíslir og um 13.500 tegundir. Meðal tegunda sem tilheyra möðruætt er kaffirunninn (Coffea arabica).
Flestar tegundir af möðruætt eru tré eða runnar sem lifa í hitabeltinu en sumar tegundir lifa í tempraða beltinu og eru graskenndar jurtir.[2]
Möðruætt er nokkuð fjölbreytt þegar kemur að plöntueinkennum. Flestar tegundir hafa einföld heilrend lauf sem vaxa gagnstæð eða kringstæð á stönglinum. Plönturnar hafa axlarblöð og sumar tegundir hafa kalsíum oxalat í blöðunum.[2]
Blómin eru undirsætin blóm og vaxa yfirleitt saman í klösum eða í hring í kringum stilkinn. Blómin hafa 4-5 laus bikarblöð, 4-5 laus krónublöð og 4-5 fræfla. Aldinið er klofaldin, hýðisaldin eða ber. Sumar tegundir hafa vængjuð fræ. Hitabeltistegundir hafa oft litrík og áberandi blóm en tegundir á tempruðum svæðum hafa frekar smá og lítið áberandi blóm.[2]
Blóm gulmöðru hafa fjögur krónublöð og fjóra fræfla.
Krossmaðra hefur kransstæð blöð.
Blöð kaffirunnans eru gagnstæð og blómin vaxa í hring utan um stilkinn.
Möðruætt (latína: Rubiaceae) er ein stærsta ætt blómplantna. Hún inniheldur 611 ættkvíslir og um 13.500 tegundir. Meðal tegunda sem tilheyra möðruætt er kaffirunninn (Coffea arabica).
Flestar tegundir af möðruætt eru tré eða runnar sem lifa í hitabeltinu en sumar tegundir lifa í tempraða beltinu og eru graskenndar jurtir.